Algengar spurningar

Svör við algengum spurningum um Explo®

Explo® er krossgátu-app, í svipuðum stíl og Netskrafl, sem sameinar skemmtun, samskipti við vini og leikfimi fyrir heilann.

Hér er nokkrum algengum spurningum um virkni Explo svarað. Ef þú ert með spurningu sem er ekki svarað hér geturðu sent hana á contact@explowordgame.com og við gerum okkar besta til að svara þér.

Hvaða orð eru leyfð í Explo og af hverju?

Explo leyfir eftirfarandi orð:

  • Orðmyndir sem finna má í Beygingarlýsingu íslensks nútímamáls (BÍN) (sjá næstu spurningu).
  • Óbeygjanleg orð (m.a. atviksorð, forsetningar og smáorð) af orðalista sem ekki er í BÍN sjálfri en má nálgast sérstaklega á vef BÍN.
  • Spurnarmyndir sagna í eintölu (“Borðaðirðu kvöldmatinn snemma?”) sem ekki eru í BÍN sjálfri en nálgast má sérstaklega á vef BÍN.
  • Orð sem eru á tveggja stafa orðalista Skraflfélags Íslands, eins og hann var ákveðinn af Orðanefnd þess í september 2015.
  • Örfá vel þekkt orð sem bætt hefur verið handvirkt við orðagrunn Explo vegna þess að þau vantar augljóslega í BÍN.

Orð sem eru ekki leyfð í Explo eru m.a.:

  • Sérnöfn hvers konar, þar á meðal mannanöfn og þjóðaheiti (Íri, Dani, Breti). Almennt gildir að ef rita á orð með hástaf þá er það ekki leyft í Explo.
  • Skammstafanir.
  • Hljóðlíkingar og dýrahljóð.
  • Erlend orð og slettur.
  • Fornt og úrelt mál.
  • Samsett orð sem ekki eru í BÍN. Það gildir meðal annars um mörg „ó-orð“, en fræðilega séð mætti setja „ó-“ framan á langflest íslensk lýsingarorð og tvöfalda þannig næstum fjölda þeirra.
  • Spurnarmyndir sagna í fleirtölu (“Borðuðuði kvöldmatinn snemma?”).
  • Tveggja stafa orð önnur en þau sem eru á orðalista Skraflfélags Íslands.
  • Örfáar orðmyndir sem hafa verið felldar niður handvirkt úr orðagrunni Explo vegna þess að þær eru augljóslega villur í BÍN.

Uppfærsla á orðalista Explo er sótt til BÍN á nokkurra mánaða fresti.

Á vegum Skraflfélags Íslands er starfandi Orðanefnd. Hlutverk hennar er að leggja meginlínur um leyfileg orð í íslensku skrafli, halda við orðalistum, taka við ábendingum og úrskurða í álitamálum. Orðagrunnur Explo er og verður uppfærður í samræmi við niðurstöður Orðanefndar hverju sinni.

Hvað þýðir BÍN?

Skammstöfunin BÍN stendur fyrir Beygingarlýsingu íslensks nútímamáls. Það er gagnagrunnur yfir orðmyndir í íslensku sem Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum heldur utan um. Nú eru um 2,3 milljónir orðmynda í grunninum. Explo notar gagnagrunn BÍN til að skera úr um hvort orð teljist leyfilegt eða ekki, með örfáum undantekningum, svo sem hvað varðar tveggja stafa orð.

Nánari upplýsingar um BÍN, og uppflettingu í gagnagrunninum, má finna á vefnum á https://bin.arnastofnun.is. Athugaðu að það þarf að haka við „Leita að beygingarmynd“ til að vera viss um að finna allar myndir orða í BÍN.

(Höfundarréttur að BÍN er á hendi Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. BÍN er notað í Explo skv. skilmálum stofnunarinnar þar um.)

Orðið X er í BÍN en er ekki leyft í Explo. Af hverju?

Það gætu verið nokkrar ástæður fyrir því. Orðið gæti verið sérnafn eða upphrópun, það gæti verið eitt af tveggja stafa orðunum sem ekki eru á lista Orðanefndar Skraflfélags Íslands, eða það gæti verið nýkomið inn í BÍN. Þá kemur það inn í Explo í næstu uppfærslu þess.

Andstæðingur fékk að leggja niður orðið X en ég finn það ekki í BÍN. Af hverju?

Auk orða sem eru í megingrunni BÍN leyfir Explo:

  • Óbeygjanleg orð (smáorð, forsetningar, atviksorð).
  • Spurnarmyndir sagna í eintölu (“Fórstu út að borða í kvöld?”).
  • Tveggja stafa orð af lista Skraflfélags Íslands, sem eru ekki öll í BÍN.
  • Örfá vel þekkt orð sem hefur verið bætt handvirkt við orðalista Explo enda vantar þau augljóslega í BÍN.

Það er algild regla að ef andstæðingur, mennskur eða þjarki, fær að leggja niður orð þá mátt þú það líka – og öfugt. Sami orðagrunnur gildir fyrir alla, alltaf!

Hver er munurinn á þjörkunum fjórum?

Fullsterkur velur alltaf stigahæsta leik sem mögulegur er í hverri stöðu. Hann hugsar hins vegar ekki taktískt, og lætur sér til dæmis í léttu rúmi liggja hvort lögn opnar fyrir að andstæðingurinn leggi á skær-appelsínugulan reit sem þrefaldar orðgildi.

Miðlungur forðast allra sjaldgæfustu orðin í orðasafninu og velur af handahófi einn af 20 stigahæstu leikjunum sem mögulegir eru.

Hálfdrættingur velur úr algengum orðaforða einn af 20 stigahæstu leikjunum sem mögulegir eru. Hann lagar sig jafnframt að getu andstæðingsins.

Amlóði velur úr algengum orðaforða einn af 30 stigahæstu leikjunum sem mögulegir eru. Hann lagar sig einnig að getu andstæðingsins.

Fullsterkur hefur úr sama orðaforða að moða og leikmenn almennt, þ.e. orð úr BÍN sem samræmast skraflreglum auk orða sem Orðanefnd hefur ákveðið að séu leyfileg.

Miðlungur kann um það bil 95% af orðaforða BÍN, en hefur ekki á takteinum orð sem merkt eru sem forn, úrelt, sjaldgæf eða staðbundin.

Amlóði og Hálfdrættingur hafa hins vegar töluvert minni orðaforða en hinir þjarkarnir. Orðaforði þeirra er um það bil fjórðungur af aðalgrunninum. Þótt orðaforði þeirra félaga sé takmarkaður getur þú eftir sem áður lagt niður öll leyfileg orð gegn þeim.

Mér finnst vanta orðið X í Explo. Hvernig kem ég því á framfæri?

Einfaldast er að nota Facebook-hóp Explo eða Facebook-síðu Skraflfélags Íslands, en einnig er unnt að koma orðum á framfæri við ritstjóra BÍN. Sjá nánari upplýsingar á vef BÍN.

Mér finnst þjarkarnir draga betri stafi en ég. Hvernig stendur á því?

Það er óheppileg tilviljun. Þjarkarnir draga stafi eftir sama algríminu og þú. (Algrímið er „formúlan“ í hugbúnaði Explo sem sér um að velja stafi úr „pokanum“ af handahófi.)

Þjarkarnir leggja niður orð sem ég fæ ekki að nota. Hverju sætir?

Það er algild regla að ef andstæðingur, mennskur eða þjarki, fær að leggja niður orð þá mátt þú það líka (og öfugt). Sami orðagrunnur gildir fyrir alla, alltaf.

Andstæðingurinn hefur ekki leikið í marga daga. Hvernig losna ég við „dauðar viðureignir“?

Þú getur þvingað andstæðing til uppgjafar þegar liðnir eru 14 dagar án leiks í viðureign. Þegar það gerist tapar sá óvirki öllum stigum sínum, og viðureigninni væntanlega þar með. Þú heldur þínum stigum hins vegar óskertum.

Eftir 12 daga án leiks birtist rauð ör við viðureignina í viðureignalista óvirka leikmannsins. Hann hefur þá tvo sólarhringa til að bregðast við. Geri hann það ekki birtist rauða örin einnig hjá þér. Ef þú opnar viðureignina með því að smella á hana sérðu rauðan hnapp neðst á síðunni, fyrir neðan borðið, sem á stendur Þvinga til uppgjafar.

Ef þú smellir á hnappinn hefur þú sigrað með þvingaðri uppgjöf. Engin tímamörk eru á slíkri þvingun, ef rauða örin er komin upp á annað borð.

Hvar get ég séð tveggja stafa orðalistann?

Ef þú snertir hnappinn sem merktur er AB fyrir neðan leikborðið birtist listinn.

Þú getur valið flipa sem sýna listann raðaðan eftir fyrri staf eða seinni staf.

Get ég losnað við hljóðin sem heyrast í Explo?

Já, þú getur slökkt á hljóðinu í stillingum. Veldu stillingarnar með því að snerta tannhjólið efst til hægri, og síðan fyrirsögnina Valkostir. Þar undir er rofi sem heitir Spila tónlist í bakgrunni. Afveldu hann og þá er slökkt á tónlistinni.

Hvernig eru stigin reiknuð?

Stig fyrir hvern leik eru reiknuð með sama hætti og í hefðbundnu borðskrafli. Meginreglurnar eru:

  • Lögð eru saman stafgildi (stig) flísanna í öllum heilum orðum sem niðurlögn þín myndar, hvort sem það eru ný orð eða viðbætur við orð sem fyrir voru á borðinu. Orð geta myndast bæði lárétt og lóðrétt, “þvers og kruss”. Öll orð verða að sjálfsögðu að vera leyfileg.
  • Ef þú leggur flís á ljósbláan eða dökkbláan reit margfaldast stafgildi þeirrar flísar, þ.e. tvöfaldast á ljósbláum reit og þrefaldast á dökkbláum. Hin margfölduðu stig telja bæði í láréttu og lóðréttu orði ef reiturinn er hluti af tveimur nýmynduðum orðum. Ef þú nærð til dæmis að leggja niður É, sem hefur stafgildi 7, á dökkbláan reit (þrefalt stafgildi) þannig að það sé hluti af tveimur orðum, færðu samtals 7 x 3 x 2 = 42 stig bara fyrir É-ið eitt og sér – og þá er eftir að telja hina stafina.
  • Ef þú leggur flís á ljós-appelsínugulan eða skær-appelsínugulan reit margfaldast stigagildi alls orðsins sem flísin er hluti af, þ.e. tvöfaldast á ljóslitum og þrefaldast á skærlitum reit. Margföldunin gildir bæði fyrir lárétt og lóðrétt orð ef reiturinn er hluti af tveimur nýmynduðum orðum.
  • Fyrir hvert nýmyndað orð eru stafgildi, einföld eða margfölduð (á ljósbláum eða dökkbláum reit) reiknuð fyrst og lögð saman. Að því loknu er orðgildið sem þannig fæst margfaldað upp ef nýjar flísar í orðinu eru á ljós-appelsínugulum eða skær-appelsínugulum reit. Athugaðu að orð getur legið yfir tvo margföldunarreiti, sem gefa þá samtals fjórfalt eða jafnvel nífalt orðgildi.
  • Margföldunarreitir eru aðeins virkir í þeim leik sem flís er lögð á þá. Eftir það missa þeir virkni sína. Flísar sem á þeim eru hafa einfalt stafgildi ef þær eru hluti af orðum sem síðar eru lögð niður.
  • Auðu flísarnar, sem geta táknað þann bókstaf sem leikmaður kýs, gefa engin (núll) stafastig.
  • Ef leikmaður nær að setja út alla sjö stafina í rekkanum í einni lögn kallast það bingó og gefur 50 stiga aukabónus.
  • Ef þú segir pass eða velur að skipta út flísum færðu engin stig í þeirri umferð.

Hvað eru Elo-stig?

Explo reiknar svokölluð Elo-stig (sjá hér) fyrir alla leikmenn og einnig tölvuþjarkana. Útreikningarnir eru gerðir einu sinni á sólarhring, og ná til viðureigna sem lokið er á miðnætti.

Stigin eru vísbending um styrk leikmanna, en á ekki að taka of alvarlega.

Nýskráðir leikmenn fá í upphafi 1200 Elo-stig. Stigunum fjölgar í hvert sinn sem leikmaður sigrar í viðureign, en fækkar við tap.

Elo-stig virka í stórum dráttum þannig að á grundvelli þeirra er gerð spá um niðurstöðu viðureignar, eða nánar til tekið um vinningslíkur hvors leikmanns. Þegar niðurstaðan liggur fyrir eru Elo-stig færð frá þeim sem tapaði til þess sem sigraði, í hlutfalli við frávik niðurstöðunnar frá spánni. Segja má að kerfið sé stöðugt að leiðrétta eigin spár og leitast við að færa þær nær raunverulegum niðurstöðum viðureigna.

Hvar sé ég Elo-stigin?

Þú sérð þín eigin Elo-stig í appelsínugula reitnum efst í heimaskjá Explo.

Elo-stigin eru neðst hægra megin í reitnum.

Hvernig eru Elo-stigin reiknuð?

Elo-kerfið er stillt þannig af að hækkun um 400 stig táknar tíföldun líkinda á sigri. Það þýðir að ef tveir leikmenn eigast við, þar sem annar hefur t.d. 1100 stig en hinn 1500, eru líkur þess síðarnefnda á sigri taldar vera 10:1 (tíu á móti einum), þ.e. 10/11, en hins fyrrnefnda 1/11.

Ef allt fer eins og líklegast er talið og sá stigahærri sigrar, urðu úrslitin 1:0 fyrir honum eða með öðrum orðum 11/11 honum í hag en 0/11 fyrir andstæðinginn. Niðurstaðan er 1/11 umfram spá, sem var 10/11. Það umframhlutfall er margfaldað með tölunni 20 og rúnnað af í heila tölu. Útkoman er að stigahái leikmaðurinn bætir við sig 2 Elo stigum með sigrinum, enda er hann í góðu samræmi við spá kerfisins.

Ef á hinn bóginn sá með 1100 stigin sigrar óvænt þann með 1500 snýr dæmið öfugt. Árangur stigalága leikmannsins varð 11/11 en spáð var 1/11. Umframárangur var 10/11 og þegar hann er margfaldaður með 20 og rúnnað af fæst út að leikmaðurinn bætir við sig 18 Elo-stigum – sem sá sterki tapar. Bilið milli þeirra minnkar því úr 400 stigum í 364.

Hér má sjá nokkur dæmi um spá Elo-kerfisins um sigurlíkur leikmanna eftir stigamun þeirra:

Stigamunur 50 stig 100 stig 200 stig 400 stig
Stigahærri leikmaður 57% 64% 76% 91%
Stigalægri leikmaður 43% 36% 24% 9%

Elo-kerfi Explo lítur aðeins á sigur, jafntefli eða tap. Ekki skiptir máli með hversu mörgum stigum viðureign vannst eða tapaðist. Jafntefli er talið sem hálfur vinningur hjá hvorum leikmanni.

Sú undantekning er gerð að fyrstu 10 viðureignir byrjenda breyta aðeins Elo-stigum þeirra sjálfra, ekki andstæðinga þeirra (nema þeir séu einnig byrjendur). Það er því óhætt fyrir reyndari leikmenn að etja kappi við byrjendur, þó Elo-stig þeirra séu hugsanlega röng til að byrja með.

Hver er formúlan fyrir Elo-stigunum nákvæmlega?

Ef E(a) eru Elo-stig leikmanns A og E(b) stig leikmanns B, reiknar kerfið S(a) = 10^(E(a)/400) og S(b) = 10^(E(b)/400). Vinningslíkur A eru þá L(a) = S(a) / (S(a) + S(b)), en vinningslíkur B eru L(b) = S(b) / (S(a)+ S(b)). Ef A sigrar leikinn fær hann 20 * (1 – L(a)) Elo-stig í viðbót, en tapi hann leiknum dragast af honum 20 * (1 – L(b)) = 20 * L(a) enda er L(a) + L(b) = 1. Sama gildir fyrir B með öfugum formerkjum.

Dæmi: A hefur 1200 Elo-stig en B 1600. S(a) = 10^3 = 1000. S(b) = 10^4 = 10000. L(a) = 1000 / 11000 = 9,09%. L(b) = 10000/11000 = 90,91%. B er sem sagt talinn 10 sinnum líklegri en A til að sigra leikinn. Ef það verður niðurstaðan fær B 20 * 9,09% = 2 Elo-stig í viðbót, enda sigurinn mjög nálægt spánni. Ef B tapar hins vegar, dragast af honum 20 * 90,91% = 18 Elo-stig, sem A fær – enda er A þá talinn vanmetinn leikmaður sem eigi að færast nær B í stigafjölda.

Af hverju vantar Elo-stig á nýjustu viðureignir hjá mér?

Elo-útreikningarnir fara fram í kring um kl. 03:00 UTC á hverri nóttu og miðast við viðureignir sem lokið var á miðnætti.

Af hverju eru tveir Elo-listar?

Annar listinn, tekur mið af öllum viðureignum, einnig við þjarka. Hinn listinn er aðeins reiknaður út frá viðureignum milli fólks. Elo-staða leikmanna getur verið mismunandi á þessum tveimur listum.

Af hverju breytast Elo-stigin ekki í lok viðureignar?

Viðureignir við byrjendur, þ.e. leikmenn sem hafa ennþá ekki lokið 10 viðureignum, teljast ekki með í Elo-stigum reyndari leikmanna.

Hvað græði ég á því að vera áskrifandi að Explo?

Áskrifendur að Explo njóta eftirfarandi fríðinda:

  • Ótakmarkaður fjöldi viðureigna í gangi samtímis, í stað þriggja að hámarki.
  • Geta skorað á alla fjóra þjarkana, ekki aðeins þá tvo auðveldustu.
  • Aðgangur að yfirliti að lokinni viðureign, sem sýnir bestu leiki sem mögulegir voru í hverri stöðu.
  • Þeir geta skorað á aðra leikmenn í keppnisham með handvirkri véfengingu án græna litarins sem gefur til kynna að orð sé gilt.
  • Áskrifendur eru merktir með blárri kórónu sem sýnir að þeir eru hollvinir Explo!

Hvernig hætti ég að vera áskrifandi?

Það er einfalt: þú velur stillingar (tannhjólið efst til hægri), síðan fyrirsögnina Reikningur og snertir svo hnappinn Stjórna áskrift. En það væri leiðinlegt að sjá þig fara!

Hvað er „keppnishamur“?

Áskrifendur geta skorað á aðra leikmenn í keppnisham. Í keppnisham er enginn grænn litur sem segir til um hvort orð eru gild eða ekki. Leggja má niður hvaða orð sem er. Það er andstæðingsins að véfengja lögn sem hann telur ranga.

Lögn andstæðings er véfengd með því að smella á rauðan hnapp með hvítu bannmerki.

Ef lögn andstæðings er ógild, þ.e. eitthvert orð sem hún myndar er ekki í orðagrunni Explo, er hún fjarlægð af borðinu og stig sem andstæðingurinn fékk fyrir hana eru dregin af honum. Þú átt þá leik en andstæðingurinn hefur fyrirgert umferðinni og fær engin stig fyrir hana.

Ef lögn andstæðings er hins vegar gild, og véfengingin þar af leiðandi óréttmæt, fær andstæðingurinn 10 stig aukalega í sárabætur. Þú átt hins vegar áfram leik.

Keppnishamnum er ætlað að líkja eftir hefðbundnu borðskrafli. Reglur um véfengingu eru í samræmi við reglur Skraflfélags Íslands.

Hvernig skora ég á andstæðing í keppnisham?

Ef þú ert áskrifandi að Explo getur þú skorað á aðra leikmenn í keppnisham, hvort sem þeir eru einnig áskrifendur eður ei.

Keppnishamur er valinn með rofa á skjánum sem kemur upp þegar þú gefur út áskorun.

Af hverju er beðið um fullt nafn leikmanns?

Leikmenn ráða því sjálfir hvaða nafn er geymt og sýnt sem fullt nafn þeirra. Hægt er að breyta fulla nafninu í stillingunum, alveg eins og gælunafninu. Það er engin krafa um að það sé rétt nafn. Það má til dæmis verið sama nafn og gælunafnið, ef leikmaður kýs svo.

Ástæðan fyrir því að Explo geymir bæði gælunafn og fullt nafn er að gælunafnið er styttra, og þess vegna er pláss fyrir það til dæmis í haus viðureignar (fyrir ofan borðið) og í viðureignalistum. Mörg vilja hins vegar líka hafa fullt nafn með því þá er hægt að leita eftir því. Það hjálpar til dæmis vinum og fjölskyldu að finna leikmanninn í listum yfir leikmenn til að skora á.

Hvernig eyði ég reikningi mínum?

Þú getur eytt reikningi þínum með því að smella á ,,Eyða reikningi“ í stillingum undir ,,Reikningur“.